Eymar Einarsson sjómaður á Akranesi handfjatlar hér vænan þorsk eftir veiðiferð. Ljósm. úr safni/ mm

Sjómannablað í næstu viku

Í næstu viku verður Skessuhorn að mestu helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt verður við sjómenn víðsvegar um Vesturland um störf þeirra og leik.

Þeir sem vilja koma auglýsingum á framfæri í þetta blað er bent á að frestur til þess rennur út á hádegi föstudaginn 26. maí. Bent er á síma 433-5500 og auglysingar@skessuhorn.is

Sjómannablað í næstu viku - Skessuhorn