
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varaoddviti Reykhólahrepps. Ljósm. Stjórnarráðið.
Í átt að kolefnishlutleysi Reykhólahrepps
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varaoddviti Reykhólahrepps, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um framkvæmd aðgerða til að stuðla að kolefnishlutleysi í Reykhólahreppi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og sveitarfélagið ætla að hrinda í framkvæmd.