
Hraðablinda orsök fyrir hraðakstri
Seinni part síðasta mánudags var ökumaður tekinn fyrir að aka á 133 kílómetra hraða á Hálsbæjarvegi á Vestfjarðavegi. Þegar lögreglan ræddi við ökumanninn og spurði hann út í hraðaksturinn sagði hann orsökina vera svokallaða hraðablindu. Ekki fylgir sögunni hvort viðkomandi hafi verið með vottorð upp á það og sloppið við sekt en hraðablinda getur verið hættuleg, að sögn lögreglu. Hraðablinda er rangt mat á eigin hraða í samanburði við það sem hann raunverulega er. Hraðablinda gerir meðal annars vart við sig þegar ekið er lengi á sama hraða á góðum vegi, einkum ef vegurinn er breiður og vítt allt um kring. Til að forðast hraðablindu er best að festa augun ekki á veginum heldur hreyfa þau, líta reglulega á hraðamælinn og lækka í tónlistinni en þekkt er að há tónlist fái fólk til að gleyma sér og aka hraðar.