Fréttir

true

Opið hús í Breið nýsköpunarsetri á morgun

Nýsköpunarhátíðin Iceland Innovation Week er haldin árlega á Íslandi í lok maí. Hefur hátíðin farið stækkandi og er í ár von á um 400 erlendum aðilum til landsins sem taka þátt í hátíðinni með því að kynna sér íslenska nýsköpun og halda fyrirlestra um hvað sé að gerast í nýsköpun í heiminum. Breið nýsköpunarsetur á…Lesa meira

true

Grasið grær sem aldrei fyrr og nægt súrefni í umferð

Það er ekki laust við að dálítill drungi hvíli yfir samfélaginu. Því veldur m.a. haustlægð að vori sem almenningur hefur hreint ekki þolinmæði fyrir. Veðrið bætist við fregnir um verkföll, stýrivaxtaógn, stríð, dapurt gengi ríkisstjórnar í könnunum og sitthvað fleira. Þegar mikið magn þungra frétta raðast í umferð á sömu dagana dofnar gjarnan yfir mannlífinu.…Lesa meira

true

Halda opinn kynningarfund um tillögu að deiliskipulagi

Opinn kynningarfundur um tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis Skipavíkur í Stykkishólmi verður haldinn í Amtbókasafninu á morgun, 24. maí kl. 17:00. Á fundinum gera Kristín Þorleifsdóttir skipulagsfulltrúi og Bæring Bjarnar Jónsson skipulagsráðgjafi grein fyrir vinnu vegna deiliskipulags hafnarsvæðis við Skipavík. Að lokinni kynningu verður opið fyrir umræður og ábendingar. Fundarstjóri verður Hilmar Hallvarðsson, formaður skipulagsnefndar. Á…Lesa meira

true

Survivordagur Heiðarskóla var í Álfholtsskógi

Síðastliðinn miðvikudag var haldinn árlegur Survivordagur Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. Skólastarfið fór fram í Álfholtsskógi í Skilmannahreppi og var nemendum skipt í sjö aldursblandaða hópa. Þeir unnu fjölbreytt verkefni á sjö stöðvum í skóginum; listaverk, tónlist, brauðbakstur, útileiki, spurningakeppni, vinabönd og mandala. Eftir stöðvavinnu var boðið upp á hamborgara við Furuhlíð og eftir hádegisverð sýndu hóparnir…Lesa meira

true

Opin gæðingakeppni Harðar og Dreyra

Um síðustu helgi héldu hestamannafélögin Hörður í Mosfellsbæ og Dreyri á Akranesi sameiginlega opna gæðingakeppni. Fór hún fram á glæsilegu félagssvæði Harðar. Skráning var góð miðað við slæma veðurspá en knapar og hestar létu það ekki á sig fá. Á laugardeginum var forkeppni í flokkum riðin auk 100 m flugskeiðs, P2. Á sunnudeginum voru síðan…Lesa meira

true

Skagamenn enn í leit að fyrsta sigrinum

ÍA og Afturelding áttust við í þriðju umferð í Lengjudeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram við frekar erfiðar aðstæður á Akranesvelli. Skagamenn byrjuðu af krafti í leiknum, pressuðu hátt upp völlinn en gekk illa að skapa sér færi í rokinu. Smátt og smátt komust leikmenn Aftureldingar inn í leikinn og þeir komust…Lesa meira

true

Könnun um öryggi barna í bíl

Í morgun fór fram könnun á vegum Samgöngustofu um öryggi barna í bílum. Var könnunin gerð við leikskóla í ýmsum þéttbýliskjörnum. Fulltrúar úr slysavarnadeildum Landsbjargar tóku á móti foreldrum og börnum við leikskóla þeirra og athuguðu hvaða öryggisbúnaður var til staðar fyrir börnin í bílum. Hafa slíkar kannanir verið gerðar reglulega á vegum Samgöngustofu frá…Lesa meira

true

Sjoppan áfram í Ólafsvík

Nýir eigendur tóku við rekstri Söluskála Ó.K. í Ólafsvík um síðustu mánaðamót. Hjónin Júníana Björg Óttarsdóttir og Jóhann Pétursson tóku við keflinu af hjónunum Ólínu Björk Kristinsdóttur og Þórði T. Stefánssyni. Þau höfðu rekið Söluskála Ó.K. í tæp 30 ár en leituðu síðastliðið haust eftir að fá nýja aðila til að taka við rekstrinum. Við…Lesa meira

true

Jákvæð rekstrarniðurstaða Eyja- og Miklaholtshrepps

Ársreikningur Eyja- og Miklaholtshrepps fyrir árið 2022 var samþykktur samhljóða í sveitarstjórn fimmtudaginn 11. maí sl. Reikningurinn er nú aðgengilegur á vef sveitarfélagsins. Þar kemur fram að rekstrartekjur á árinu námu 183,6 milljónum króna fyrir A og B hluta en tekjur A hluta námu 181,1 milljón króna. Álagningarhlutfall útsvars var 14,52% sem er lögbundið hámark.…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíðin verður á Akranesi á næsta ári

Í síðustu viku var tilkynnt um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði Íslands. Alls hlaut 41 verkefni styrk að þessu sinni að upphæð 96,8 milljónum króna. Er þetta í fimmta sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum. Eitt verkefni á Vesturlandi hlaut styrk. Hann rennur til Akraneskaupstaðar vegna Barnamanningarhátíðar Vesturlands árið 2024. Styrkupphæðin er 4,1 milljón króna.…Lesa meira