
Stykkishólmur. Ljósm. sá
Halda opinn kynningarfund um tillögu að deiliskipulagi
Opinn kynningarfundur um tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis Skipavíkur í Stykkishólmi verður haldinn í Amtbókasafninu á morgun, 24. maí kl. 17:00. Á fundinum gera Kristín Þorleifsdóttir skipulagsfulltrúi og Bæring Bjarnar Jónsson skipulagsráðgjafi grein fyrir vinnu vegna deiliskipulags hafnarsvæðis við Skipavík. Að lokinni kynningu verður opið fyrir umræður og ábendingar. Fundarstjóri verður Hilmar Hallvarðsson, formaður skipulagsnefndar.