Fréttir

true

Skinkuhorn – Silja Eyrún Steingrímsdóttir

Gestur Skinkuhornsins þessa vikuna er Silja Eyrún Steingrímsdóttir nýr formaður Stéttarfélags Vesturlands. Hún er fædd og uppalin á Akranesi en býr nú í Borgarnesi og hefur gert í tæp 20 ár. Silja er gift Pálma Þór Sævarssyni og saman eiga þau fjögur börn. Silja er með BA-próf í Heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum í…Lesa meira

true

Markaleikur hjá Reyni og Álafossi

Reynir Hellissandi og Álafoss úr Mosfellsbæ áttust við í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Það er óhætt að segja að það hafi fossað inn mörkum fyrsta klukkutímann því þá var staðan 0-4 fyrir Álafossi og Alexander Aron Davorsson kominn með þrennu fyrir gestina. Aron Gauti Kristjánsson…Lesa meira

true

Varmalands- og Kleppjárnsreykjalaugum lokað á veturna

Byggðarráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum 17. maí síðastliðinn undir tillögu fræðslunefndar sem lagt hafði það til að hætta vetraropnun sundlaugarinnar á Kleppjárnsreykjum frá og með næsta hausti. Þar með yrði samræmt þjónustustig þar og í sundlauginni á Varmalandi. Byggðarráð bókaði vegna laugarinnar á Kleppjárnsreykjum: „Nýtingartölur sundlaugarinnar geta ekki réttlætt opnun að vetrarlagi fyrir almenning.…Lesa meira

true

Vindhraði við fjöll gæti slegið í 40 m/sek

Áfram bætist í viðvaranir vegna veðurs á morgun, þriðjudag. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Með hvössum suðvestanvindi sem spáð er á morgun má reikna með hviðum allt að 35-40 m/s, staðbundið, einkum um landið vestan- og norðanvert. Einna hvassast verður eftir hádegi og fram á kvöld.“ There is expected strong wind, even storm tomorrow.  Turbulent and…Lesa meira

true

Sporið tekur sporið í Tónbergi

Kalman listafélag býður til danssýningar með þjóðdansafélaginu Sporinu í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, miðvikudaginn 24. maí kl. 20. Sporið, þjóðdansafélag, sýnir íslenska þjóðdansa og heldur á bilinu 20 til 30 sýningar á ári hverju. Hópurinn samanstendur af 13 – 15 danspörum, harmonikkuleikurum, fiðluleikara og söngvurum. Saman hefur hópurinn tekið þátt í margvíslegum verkefnum bæði…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir KFK í rokinu

Skallagrímur lék sinn fyrsta heimaleik í sumar á föstudagskvöldið í 4. deild karla í knattspyrnu þegar liðið tók á móti liði KFK á Skallagrímsvelli. Gestirnir úr Kópavogi byrjuðu betur í leiknum og komust yfir á 23. mínútu þegar Andri Jónasson skoraði fyrsta mark leiksins. Fimm mínútum síðar varð Hlöðver Már Pétursson leikmaður Skallagríms fyrir því…Lesa meira

true

Kári tapaði fyrir Víði í spjaldaleik

Kári og Víðir Garði mættust á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu og var leikurinn í Akraneshöllinni. Gestirnir komust yfir eftir tæpan hálftíma leik þegar þeir fengu sitt fyrsta færi í leiknum. Daniel Fidalgo skallaði þá boltann í netið af stuttu færi eftir misheppnaðan skalla samherja hans sem endaði á kollinum á Daniel. Undir…Lesa meira

true

Ráðherra heldur opinn fund í Borgarnesi um málefni fatlaðs fólks

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður til opinna samráðsfunda um landið. Á fundunum verður fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks…Lesa meira

true

Húsnæðiskreppa vegna ábyrgðarflótta stjórnmálamanna

„Stjórnvöld bera ábyrgð á því ófremdarástandi sem nú ríkir í húsnæðismálum sem fyrst og fremst má rekja til skorts á heildarsýn í málaflokknum og ábyrgðarflótta ríkis og veitarfélaga.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna tímabundinna undanþága frá skipulags-…Lesa meira