
Byggingarframkvæmdir í gangi. Ljósm. úr safni/ frg.
Ný hagspá ASÍ gerir ráð fyrir að hægi á vexti og að verðbólga verði þrálát
Samkvæmt nýrri hagspá ASÍ er útlit fyrir 3,1% hagvöxt á þessu ári en þráláta verðbólgu. Gert er ráð fyrir að hægja muni á þeim mikla hagvexti sem einkennt hefur hagkerfið á þessu ári og því næsta. „Mikill hagvöxtur síðasta árs var einkum drifinn áfram af einkaneyslu og bata ferðaþjónustunnar. Samkvæmt spá ASÍ verða áfram töluverð umsvif í hagkerfinu á þessu ári en hægja mun á vexti einkaneyslu og innlendrar eftirspurnar er líður á spátímann. Skýrist það meðal annars af minni kaupmætti ráðstöfunartekna og aukinni vaxtabyrði heimila. Skýr merki eru um að nú þrengi að stöðu heimila.“