
Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands.
Skinkuhorn – Silja Eyrún Steingrímsdóttir
Gestur Skinkuhornsins þessa vikuna er Silja Eyrún Steingrímsdóttir nýr formaður Stéttarfélags Vesturlands. Hún er fædd og uppalin á Akranesi en býr nú í Borgarnesi og hefur gert í tæp 20 ár. Silja er gift Pálma Þór Sævarssyni og saman eiga þau fjögur börn. Silja er með BA-próf í Heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Bifröst og MPA-próf í Opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún hóf störf sem skrifstofustjóri hjá Stéttarfélagi Vesturlands árið 2015 en í lok apríl á þessu ári var hún kjörin formaður félagsins. Í Skinkuhorninu segir Silja m.a. frá því af hverju þau Pálmi settust að í Borgarnesi, hvernig praktík réði því hvaða starfsvettvang hún valdi og hvað starf hjá stéttarfélagi felur í sér.