
Ráðherra heldur opinn fund í Borgarnesi um málefni fatlaðs fólks
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður til opinna samráðsfunda um landið. Á fundunum verður fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma. Ráðherra verður í Borgarnesi, á B59, nú á miðvikudaginn 24. maí kl. 17:00.