
Opið hús í Breið nýsköpunarsetri á morgun
Nýsköpunarhátíðin Iceland Innovation Week er haldin árlega á Íslandi í lok maí. Hefur hátíðin farið stækkandi og er í ár von á um 400 erlendum aðilum til landsins sem taka þátt í hátíðinni með því að kynna sér íslenska nýsköpun og halda fyrirlestra um hvað sé að gerast í nýsköpun í heiminum.