Nýslegið gras og útsprungin tré í garði við hlið ritsjórnarskrifstofu Skessuhorns.

Grasið grær sem aldrei fyrr og nægt súrefni í umferð

Það er ekki laust við að dálítill drungi hvíli yfir samfélaginu. Því veldur m.a. haustlægð að vori sem almenningur hefur hreint ekki þolinmæði fyrir. Veðrið bætist við fregnir um verkföll, stýrivaxtaógn, stríð, dapurt gengi ríkisstjórnar í könnunum og sitthvað fleira. Þegar mikið magn þungra frétta raðast í umferð á sömu dagana dofnar gjarnan yfir mannlífinu. En, það er ljós í myrkrinu!

Ef maður bregður sér út fyrir hússins dyr tekur afar skamman tíma að fylla lungun af hreinu og tæru súrefni. Grasið sprettur betur en í meðalári, trén eru að laufgast og náttúran öll tekur á sig nýtt svipmót og bjartari liti. Gleðjumst, því þrátt fyrir allt er lífið yndislegt.

Grasið grær sem aldrei fyrr og nægt súrefni í umferð - Skessuhorn