
Jóhann og Þórður á bak við búðarborðið. Ljósm. vaks
Sjoppan áfram í Ólafsvík
Nýir eigendur tóku við rekstri Söluskála Ó.K. í Ólafsvík um síðustu mánaðamót. Hjónin Júníana Björg Óttarsdóttir og Jóhann Pétursson tóku við keflinu af hjónunum Ólínu Björk Kristinsdóttur og Þórði T. Stefánssyni. Þau höfðu rekið Söluskála Ó.K. í tæp 30 ár en leituðu síðastliðið haust eftir að fá nýja aðila til að taka við rekstrinum. Við eigendaskiptin fékk söluskálinn nýtt nafn, Sjoppan, og ber nafn með rentu.