Fréttir

true

Skallagrímur Íslandsmeistari í minnibolta 10 ára stúlkna

Um síðustu helgi fór fram fjórða og síðasta umferðin í minnibolta 10 ára stúlkna á Íslandsmótinu í körfuknattleik og var leikið á Flúðum. Lið Skallagríms úr Borgarnesi gerði sér lítið fyrir og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Grindavík í úrslitaleik A riðils. Í fyrstu umferð mótsins vann Skallagrímur lið Þórs Þ./Hamars 16:14 í hörkuleik,…Lesa meira

true

Dimission í FVA í dag

Það voru sprækir og eldhressir útskriftarnemar í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi sem voru mættir í morgunsárið í matsal FVA í Dimission. Eftir rúman hálfan mánuð munu þeir setja upp stúdentshúfuna og útskrifast með láði frá skólanum. En fyrst er ætlunin að sletta aðeins úr klaufunum og er stefnan sett á höfuðborgina í smá sprell þar…Lesa meira

true

Útskriftarhátíð Reiðmannsins fór fram á Mið-Fossum – helstu úrslit

Mánudaginn 1. maí var haldin útskriftarhátíð í Reiðmanninum I og II sem er nám á vegum Endurmenntunar LbhÍ og er ætlað fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vilja auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Ekki síður er námið hugsað fyrir reiðmenn sem vilja fara í þá vinnu að…Lesa meira

true

Umferð hleypt á Borgarbrautina fyrir mánaðamót

Nú styttist í að framkvæmdir við endurgerð Borgarbrautar í Borgarnesi, á móts við tónlistarskólann, ljúki. Hjáleið hefur nú lengi legið yfir Kveldúlfsgarð og Berugötu og eru íbúar við götuna farnir að ókyrrast yfir þeim töfum sem orðið hafa á verklokum. Skessuhorn spurði Stefán Brodda Guðjónsson sveitarstjóra Borgarbyggðar um hvenær búast megi við að umferð verði…Lesa meira

true

Mjög mikilvægt að byrja mótið vel

Víkingur Ólafsvík spilar annað árið í röð í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar en í fyrra hafnaði Víkingur í sjöunda sæti deildarinnar. Guðjón Þórðarson þjálfari liðsins var ekki endurráðinn og aðstoðarþjálfari hans síðasta sumar, Brynjar Kristmundsson, tók við af honum í haust og stýrir liðinu í sumar. Fyrsti leikur Víkings í deildinni er…Lesa meira

true

Lindin opnuð í Húsafelli á næstu vikum

Framkvæmdir hafa í vetur staðið yfir á sundlauginni í Húsafelli en búið er að endurbæta aðstöðu í sundlaugarhúsi og útisvæðið við laugarnar. Sundlaugin hefur fengið nafnið Lindin og mun þjóna hótelgestum en jafnframt verða opin almenningi allan ársins hring. Unnar Bergþórsson á Húsafelli segir laugina nú geta stutt betur við rekstur hótelsins en allir geta…Lesa meira

true

Sveitarfélögin samþykktu aukningu hlutafjár í Ljósleiðaranum

Nú hafa sveitarfélögin þrjú sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur, þ.e. Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð, samþykkt að auka hlutafé Ljósleiðarans ehf og bjóða nýjum hluthöfum það til kaups. Með hlutafjárútboðinu er stefnt að því að fá nýja fjárfesta að þriðjungs hlut í Ljósleiðaranum ehf. en OR eigi áfram 66,6% í fyrirtækinu. „Í krafti þess umboðs verður nú…Lesa meira

true

Stemning við höfnina þegar bátarnir komu að landi – myndasyrpa

Það var fallegt við höfnina á Akranesi síðdegis í dag þegar blaðamaður Skessuhorns kom þar við. Verið var að landa áburði úr norska flutningaskipinu Kjervaagsund, en við löndunarbryggjuna voru fyrstu strandveiðibátarnir að koma að landi eftir veiðiferð dagsins. Nú hafa um 13 bátar fengið úthlutað leyfi frá Akranesi og eru fimm eða sex þeirra byrjaðir…Lesa meira

true

Aðalfundur SBK og haldið upp á 90 ára afmælið

Aðalfundur Sambands borgfirskra kvenna var haldinn að Hótel Húsafelli fimmtudaginn 27. apríl síðastliðinn í blíðskaparverði; sólskini og léttri norðanátt. Á fundinn mættu yfir 30 konur frá kvenfélögunum í héraðinu. Einnig heiðraði Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti Kvenfélagasambands Íslands fundinn og færði SBK forláta gestabók að gjöf. Að loknum aðalfundi var svo haldið í hátíðarkvöldverð í veitingasal…Lesa meira

true

„Stefnum á að gera okkur gildandi í toppbaráttuna“

Knattspyrnufélagið Kári leikur í 3. deild karla í ár eins og í fyrra en þá endaði liðið í 5. sæti deildarinnar. Aron Ýmir Pétursson tók við liði Kára fyrir þetta tímabil og honum til aðstoðar er fyrrum fyrirliði Kára, Andri Júlíusson. Blaðamaður Skessuhorns heyrði hljóðið í Aroni Ými í síðustu viku fyrir fyrsta leik sem…Lesa meira