Andri og Aron Ýmir eru spenntir fyrir tímabilinu. Ljósm. vaks

„Stefnum á að gera okkur gildandi í toppbaráttuna“

Knattspyrnufélagið Kári leikur í 3. deild karla í ár eins og í fyrra en þá endaði liðið í 5. sæti deildarinnar. Aron Ýmir Pétursson tók við liði Kára fyrir þetta tímabil og honum til aðstoðar er fyrrum fyrirliði Kára, Andri Júlíusson. Blaðamaður Skessuhorns heyrði hljóðið í Aroni Ými í síðustu viku fyrir fyrsta leik sem verður næsta laugardag. Aron segir léttur að undirbúningstímabilið hafi gengið heilt yfir mjög vel. „Við höfum æft af miklum krafti frá því í byrjun janúar. Eins og gengur og gerist á löngu tímabili eins og undirbúningstímabilið hér á Íslandi er þá hafa úrslit leikjanna verið upp og ofan enda erum við mun meira að horfa í frammistöðu en úrslit á þeim tíma. Síðustu vikur höfum við verið á mjög flottu skriði og förum tilbúnir inn i tímabilið. Allir leikmenn eru klárir í slaginn nema Kristófer Áki Hlinason sem var svo óheppinn að brjóta bein í fæti en hann ætti að vera klár um miðjan maí.“

„Stefnum á að gera okkur gildandi í toppbaráttuna“ - Skessuhorn