Jói og Villi Birgis ræðast við. Ljósm. mm

Stemning við höfnina þegar bátarnir komu að landi – myndasyrpa

Það var fallegt við höfnina á Akranesi síðdegis í dag þegar blaðamaður Skessuhorns kom þar við. Verið var að landa áburði úr norska flutningaskipinu Kjervaagsund, en við löndunarbryggjuna voru fyrstu strandveiðibátarnir að koma að landi eftir veiðiferð dagsins. Nú hafa um 13 bátar fengið úthlutað leyfi frá Akranesi og eru fimm eða sex þeirra byrjaðir veiðar. Fyrstur að landi kom Jóhann Pálsson á Snarfara AK ásamt aðstoðarmanni. Þeir lönduðu ríflegum dagsskammti, eða 810 kílóum af vænum þorski. Jói sagðist hafa siglt lengst í morgun, farið í Rennurnar svokölluðu, milli Hraunanna. Þangað sé um tveggja tíma stím. Reyndar sagði hann kaldaskít hafa verið þarna úti, en fiskurinn vænni en hann er nær landi. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélagið kom aðvífandi til að kíkja á karlana og sagði einfaldlega við blaðamann: „Þetta er lífið.“ Aðspurður um hvort hann þekkti þessi kennileiti og mið sem karlarnir væru að tala um sagðist Villi nú halda það, þekkti hnitin nánast upp á hár. Sagði hann drauminn að eignast lítinn bát til að geta sjálfur róið og náð sér í soðið.

Stemning við höfnina þegar bátarnir komu að landi - myndasyrpa - Skessuhorn