Guðmundur Árnason hampaði Reynisbikarnum. Ljósm. LbhÍ.

Útskriftarhátíð Reiðmannsins fór fram á Mið-Fossum – helstu úrslit

Mánudaginn 1. maí var haldin útskriftarhátíð í Reiðmanninum I og II sem er nám á vegum Endurmenntunar LbhÍ og er ætlað fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vilja auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Ekki síður er námið hugsað fyrir reiðmenn sem vilja fara í þá vinnu að efla sig sem manneskjur. Reiðmaðurinn er haldinn um land allt og komu sjö reiðmannahópar saman í hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum og fögnuðu tímamótunum ásamt því að keppt var um Reynisbikarinn, en Reynir Aðalsteinsson tamningameistari var upphafsmaður námsins og hefur það notið mikilla vinsælda í áraraðir. Fjölmennt var á útskriftarhátíðinni sem fram fór í góðu veðri og voru á þriðja hundrað manns sem mættu til að taka þátt í deginum og fagna útskriftarlokum hjá tæplega 100 nemendum. Á haustönn luku einnig 50 til viðbótar framhaldsnámi í Reiðmanninum.

Útskriftarhátíð Reiðmannsins fór fram á Mið-Fossum - helstu úrslit - Skessuhorn