
Á tröppunum framan við Hótel Húsafell.
Aðalfundur SBK og haldið upp á 90 ára afmælið
Aðalfundur Sambands borgfirskra kvenna var haldinn að Hótel Húsafelli fimmtudaginn 27. apríl síðastliðinn í blíðskaparverði; sólskini og léttri norðanátt. Á fundinn mættu yfir 30 konur frá kvenfélögunum í héraðinu. Einnig heiðraði Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti Kvenfélagasambands Íslands fundinn og færði SBK forláta gestabók að gjöf.