
Hópurinn stillti sér fyrir utan skólann. Ljósm. FB síða FVA.
Dimission í FVA í dag
Það voru sprækir og eldhressir útskriftarnemar í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi sem voru mættir í morgunsárið í matsal FVA í Dimission. Eftir rúman hálfan mánuð munu þeir setja upp stúdentshúfuna og útskrifast með láði frá skólanum. En fyrst er ætlunin að sletta aðeins úr klaufunum og er stefnan sett á höfuðborgina í smá sprell þar sem þau ætla að eyða deginum.