
Brynjar Kristmundsson þjálfari Víkings. Ljósm. af
Mjög mikilvægt að byrja mótið vel
Víkingur Ólafsvík spilar annað árið í röð í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar en í fyrra hafnaði Víkingur í sjöunda sæti deildarinnar. Guðjón Þórðarson þjálfari liðsins var ekki endurráðinn og aðstoðarþjálfari hans síðasta sumar, Brynjar Kristmundsson, tók við af honum í haust og stýrir liðinu í sumar. Fyrsti leikur Víkings í deildinni er á móti Dalvík/Reyni næsta laugardag á Ólafsvíkurvelli og hefst klukkan 16. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Brynjari í lok síðustu viku og spurði hann fyrst hvernig undirbúningstímabilið hefði gengið í vetur. Brynjar segir að það hafi alveg gengið þokkalega.