Fréttir

true

Héldu stórt evrópskt sjóstangveiðimót í Ólafsvík

Evrópumót í sjóstangveiði var haldið í Ólafsvík dagana 27. til 28. maí. Mótið var skipulagt af Íslandsdeild Samtaka evrópskra sjóstangveiðifélaga (EFSA). Þátttakendur voru 64 og komu frá tíu þjóðlöndum. Róið var á 17 bátum og lögð áhersla á að veiða þorsk og ufsa og gáfu stærstu fiskarnir flest stigin. Alls veiddust 6.390 fiskar á mótinu,…Lesa meira

true

Skipt um flotbryggju í Grundarfirði

Síðastliðinn mánudag stóðu starfsmenn Grundarfjarðarhafnar og Köfunarþjónustunnar í ströngu þegar skipt var um flotbryggju í höfninni í Grundarfirði. Nýja flotbryggjan er talsvert lengri en sú gamla og því geta fleiri farþegabátar lagst að bryggju með farþega skemmtiferðaskipanna á komandi árum. Í lok dags var svo gamla bryggjan hífð upp en hún mun verða seld og…Lesa meira

true

Pétursborg afhent nýjum eigendum

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi hefur nú afhent Pétursborg, húseign sína í Brákarey, nýjum eigendum, þeim Sigrúnu Hrönn Hauksdóttur og Leifi Erni Svavarssyni. Var meðfylgjandi ljósmynd tekin við það tækifæri. Frá vinstri eru Leifur Örn og Sigrún Hrönn ásamt fulltrúum stjórnar Brákar, þeim Einari G.G. Pálssyni, Jakobi Guðmundssyni og Elínu Matthildi Kristinsdóttur formanni. Pétursborg var svo…Lesa meira

true

Karnivalstemning í Brekkubæjarskóla – myndasyrpa

Í Brekkubæjarskóla á Akranesi var í dag Karnival-hátíð í tilefni komandi sumarfrís. Þar mættu nemendur og kennarar í litríkum búningum og skemmtu sér saman með skrúðgöngu, leikjum og öllu tilheyrandi. Árgangar nemenda röðuðu sér í halarófu ásamt kennurum á Akratorgi þaðan sem skrúðgangan hélt af stað en trommusveit leiddi litríku hersinguna að grunnskólanum. Við skólann…Lesa meira

true

Ævintýrastemning á vorsýningu FIMA

Vorsýning Fimleikafélags Akraness var í gær í fimleikahúsinu við Vesturgötu. Boðið var upp á tvær sýningar og var húsfyllir á þeim báðum. Þar sýndu iðkendur og þjálfarar þeirra afrakstur þrotlausra æfinga í vetur. Þema sýninganna var gömlu ævintýrin og mátti sjá fjölmargar persónur úr sögum H.C Andersen, Grimms bræðra, Astrid Lindgren og fleiri bregða fyrir.…Lesa meira

true

Hefur gætt öryggis barna í aldarfjórðung – myndasyrpa

Guðrún Birna Haraldsdóttir í Borgarnesi vinnur nú sína síðustu vinnuviku við gangbrautargæslu á aðalgötu bæjarins. Þar hefur hún gætt öryggis skólabarna og almennings í morgunumferðinni í 25 ár og hefur gert það af einstakri hlýju og alúð. Í morgun brá henni í brún þegar hún mætti að venju snemma til vinnu og sá að stór…Lesa meira

true

Efla annast verkefnastjórn fyrir Borgarbyggð

Byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Borgarnesi hefur samþykkt að taka tilboði EFLU verkfræðistofu í verkefnastjórn vegna byggingar íþróttamannvirkja í Borgarnesi. Sama gildir um byggingarnefnd viðbyggingar við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, en nefndin hefur ákveðið að ráða Eflu í verkefnastjórn við stækkun skólahússins þar. Hvort tveggja eru umfangsmikil og kostnaðarsöm verkefni sem Borgarbyggð hyggst ráðast í á næstunni…Lesa meira

true

Rangæsk hjón hljóta Landgræðsluverðlaunin

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar sem fram fór í Gunnarsholti. Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands. Bændur á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið.…Lesa meira

true

Mikil hækkun fasteignamats milli ára

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar að meðaltali um 19,9% frá yfirstandandi ári og verður í heild 12.627 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2023. Er þetta mesta hækkun fasteignamats frá hruni. Hægt er að sjá fyrirhugað mat á www.skra.is frá og með 1. júní ár hvert og það tekur svo gildi 31.…Lesa meira

true

Kynning á svæðismarki Snæfellsness fór fram í Breiðabliki

Síðastliðinn laugardag bauð Svæðisgarður Snæfellsness til veislu í Breiðabliki. Kynnt var svokallað Svæðismark Snæfellsness fyrir sveitastjórnum, sveitarstjórum og öðrum hagaðilum. Svæðismark felur í sér vinnu við hönnum og framsetningu á því hvað gerir Snæfellsnes sérstakt – hvert DNA Snæfellsness er, ef svo má segja. Svæðisgarðurinn er skilgreindur sem fjölþætt samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og félagasamtaka á…Lesa meira