Dansað af innlifun. Ljósmyndir/ gó.

Ævintýrastemning á vorsýningu FIMA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vorsýning Fimleikafélags Akraness var í gær í fimleikahúsinu við Vesturgötu. Boðið var upp á tvær sýningar og var húsfyllir á þeim báðum. Þar sýndu iðkendur og þjálfarar þeirra afrakstur þrotlausra æfinga í vetur. Þema sýninganna var gömlu ævintýrin og mátti sjá fjölmargar persónur úr sögum H.C Andersen, Grimms bræðra, Astrid Lindgren og fleiri bregða fyrir. Allir iðkendur FIMA, 5 ára og eldri, koma fram í sýningunni og er óhætt að segja að stemningin í nýju fimleikahöllinni hafi verið frábær. Fimleikar eru með fjölmennari íþróttagreinum sem eru æfðar á Akranesi og hefur nýtt fimleikahús virkað sem vítamínsprauta á starfið. Eftir sýningarnar voru seldar grillaðar pylsur, gos og Svalar utan húss, en sýningarnar voru um leið mikilvæg fjáröflun fyrir félagið.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53909,53910,53911,53912\"]",
  "innerBlocks": []
}
Ævintýrastemning á vorsýningu FIMA - Skessuhorn