Jón Sindri Emilsson markaðsfulltrúi í Stykkishólmi útbýr rabarbaramohito fyrir gesti. Ljósm. tfk.

Kynning á svæðismarki Snæfellsness fór fram í Breiðabliki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn laugardag bauð Svæðisgarður Snæfellsness til veislu í Breiðabliki. Kynnt var svokallað Svæðismark Snæfellsness fyrir sveitastjórnum, sveitarstjórum og öðrum hagaðilum. Svæðismark felur í sér vinnu við hönnum og framsetningu á því hvað gerir Snæfellsnes sérstakt – hvert DNA Snæfellsness er, ef svo má segja.\r\n\r\nSvæðisgarðurinn er skilgreindur sem fjölþætt samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og félagasamtaka á tilgreindu svæði sem myndar samstæða landslags- og menningarlega heild. Samstarfið byggist á sameiginlegri sýn um sérstöðu svæðisins og samtakamætti við að hagnýta sérstöðuna og vernda hana. Íbúar, fyrirtæki og sveitarstjórnir á afmörkuðu svæði taka sig saman og skilgreina sérstöðu svæðisins og þau gæði sem þar er að finna. Síðan byggja aðilarnir samstarf sitt, um atvinnu- og samfélagsþróun, á þessari sérstöðu. Iðulega hefur verið komið á umfangsmiklu samstarfi á öllum sviðum mannlífs, svo sem við skóla, fyrirtæki, hverskonar samtök og sveitarfélög.\r\n\r\nÁ viðburðinum á laugardaginn var boðið upp á ljúffengar veitingar úr héraði og lögð áhersla á hráefni með sérstöðu svæðisins. Rabarbaramohito með ætum blómum frá Ræktunarstöðinni Lágafelli, Keli vert í Langaholti bauð upp á fiskisúpu og skel, Gunnar í Bjargarsteini upp á karfaroð og þarasnakk, Hjá góðu fólki bauð upp á margrómuðu perutertu og Rúnar Marvinsson sendi „Sæluskot“ sem innihélt myntu og vallhumal úr túninu heima, mjaðurt af bökkum Staðarár, blóðberg úr Staðarsveit og hvönn og fræ frá Hellissandi, kryddað með stjörnuanís, eldpipar og engifer. Óhætt er að segja að veitingarnar hafi í senn verið ljúffengar og einstakar á sinn hátt.\r\n\r\n<em>Sjá fleiri myndir í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Kynning á svæðismarki Snæfellsness fór fram í Breiðabliki - Skessuhorn