
Trommuleikarar leiddu skrúðgönguna frá Akratorgi að Brekkubæjarskóla. Ljósmyndir/sþ
Karnivalstemning í Brekkubæjarskóla – myndasyrpa
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í Brekkubæjarskóla á Akranesi var í dag Karnival-hátíð í tilefni komandi sumarfrís. Þar mættu nemendur og kennarar í litríkum búningum og skemmtu sér saman með skrúðgöngu, leikjum og öllu tilheyrandi. Árgangar nemenda röðuðu sér í halarófu ásamt kennurum á Akratorgi þaðan sem skrúðgangan hélt af stað en trommusveit leiddi litríku hersinguna að grunnskólanum. Við skólann gátu nemendur svo flakkað milli stöðva og leikið sér við ýmislegt. Í boði var að blása sápukúlur, fara í limbó, kasta blautum svömpum, húlla, spila boltaíþróttir og margt fleira auk þess sem kveikt var undir útigrillum og öllum gefið í svanginn. Útskrift 10. bekkjar fer svo fram síðar í dag og formleg skólaslit verða á morgun. Nemendur ganga því kátir í sumarfrí eftir vel heppnaða sumarhátíð.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"53918,53919,53920,53921,53922,53923,53924,53925,53926\"]",
"innerBlocks": []
}