Hefur gætt öryggis barna í aldarfjórðung – myndasyrpa
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðrún Birna Haraldsdóttir í Borgarnesi vinnur nú sína síðustu vinnuviku við gangbrautargæslu á aðalgötu bæjarins. Þar hefur hún gætt öryggis skólabarna og almennings í morgunumferðinni í 25 ár og hefur gert það af einstakri hlýju og alúð. Í morgun brá henni í brún þegar hún mætti að venju snemma til vinnu og sá að stór hópur fólks var þar saman kominn. Voru þar skjólstæðingar hennar ýmsir gegnum tíðina, mættir til að heiðra hana og þakka fyrir sig. Flosi Sigurðsson, staðgengill sveitarstjóra, flutti ávarp og færði Guðrúnu blómvönd og Sigursteinn Sigurðsson færði henni góðar gjafir frá samfélaginu sem þakklætisvott fyrir hennar verðmæta starf.\r\n\r\nAlkunna er hve miklu máli móttökur Guðrúnar hafa skipt börn á leið í grunnskólann í Borgarnesi. Heilsar hún þeim með virktum um leið og hún stoppar umferðina fyrir þau svo þau komist heilu og höldnu inn í skóladaginn. Ekki síst hefur þetta verið dýrmætt ungum sálum á dimmum vetrarmorgnum. Kona sem vel þekkir til starfa Guðrúnar komst svo að orði: „Gull af mannveru hún Guðrún Birna.“ Samkvæmt mætingunni í morgun eru margir sammála þessu. Skessuhorn var á staðnum og fangaði augnablikið.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53901,53902,53903,53904,53905,53906\"]",
"innerBlocks": []
}
Hefur gætt öryggis barna í aldarfjórðung - myndasyrpa - Skessuhorn