
Heldur betur vænir þorskar komu á færin skammt frá hafnarkjaftinum. Ljósm. af.
Héldu stórt evrópskt sjóstangveiðimót í Ólafsvík
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Evrópumót í sjóstangveiði var haldið í Ólafsvík dagana 27. til 28. maí. Mótið var skipulagt af Íslandsdeild Samtaka evrópskra sjóstangveiðifélaga (EFSA). Þátttakendur voru 64 og komu frá tíu þjóðlöndum. Róið var á 17 bátum og lögð áhersla á að veiða þorsk og ufsa og gáfu stærstu fiskarnir flest stigin. Alls veiddust 6.390 fiskar á mótinu, þar af 4.141 þorskar og 2.249 ufsar.\r\n\r\nEvrópumeistari varð Scott Gibson frá Skotlandi. Í öðru sæti varð Sævar Guðmundsson og í þriðja sæti Francois Beukes frá Suður-Afríku. Stigahæsti skipstjórinn varð Magnús Emanúelsson á bátnum Oliver SH.\r\n\r\nErlendu keppendurnir rómuðu allar aðstæður í Ólafsvík og voru afar ánægðir með mikla veiði, hjálpsama skipstjóra og aðstoðarmenn þeirra. Margir slógu þeir sín persónulegu met með að fanga stóra þorska og væna ufsa. Svona mót er mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Margir bæjarbúar fylgdust auk þess með og mikið líf var í kringum keppendur enda fjölbreyttur hópur, eða eins og áður sagði kom frá tíu þjóðlöndum.\r\n\r\nVerðlauna- og viðurkenninga athöfn var á laugardagskvöldið í Klifi og gerðu gestir vel við sig þar bæði í mat og drykk.\r\n\r\n<em>Sjá fleiri myndir í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}