Pétursborg afhent nýjum eigendum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi hefur nú afhent Pétursborg, húseign sína í Brákarey, nýjum eigendum, þeim Sigrúnu Hrönn Hauksdóttur og Leifi Erni Svavarssyni. Var meðfylgjandi ljósmynd tekin við það tækifæri. Frá vinstri eru Leifur Örn og Sigrún Hrönn ásamt fulltrúum stjórnar Brákar, þeim Einari G.G. Pálssyni, Jakobi Guðmundssyni og Elínu Matthildi Kristinsdóttur formanni.\r\n\r\nPétursborg var svo nefnd eftir Pétri Albertssyni (1929-1990) á Kárastöðum við Borgarnes sem var ötull björgunarsveitarmaður á sinni tíð. Björgunarsveitin eignaðist húsið árið 1993 og hefur haft starfsemi sína þar þangað til hún flutti fyrir stuttu ofar í bæinn, í nýtt og glæsilegt hús á Fitjunum við gatnamót Snæfellsnessvegar, í slakkanum neðan við mjólkursamlagshúsið.",
  "innerBlocks": []
}
Pétursborg afhent nýjum eigendum - Skessuhorn