Frá afhendingu verðlaunanna. F.v. Árni Bragason landgræðslustjóri, Tryggvi Felixson formaður Landverndar, Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson frá Kaldbak á Rangárvöllum ásamt fjórum barnabörnum, og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Ljósm. Stjórnarráðið.

Rangæsk hjón hljóta Landgræðsluverðlaunin

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar sem fram fór í Gunnarsholti. Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands. Bændur á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið. Landvernd hlaut verðlaunin fyrir öflugt fræðslustarf síðustu árin tengt vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu.\r\n\r\nSvandís afhenti verðlaunahöfum Fjöregg Landgræðslunnar, verðlaunagripi sem unnir eru úr tré í Eik-listiðju á Miðhúsum við Egilsstaði.",
  "innerBlocks": []
}
Rangæsk hjón hljóta Landgræðsluverðlaunin - Skessuhorn