
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar sem fram fór í Gunnarsholti. Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands. Bændur á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið.…Lesa meira








