
Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar. Ljósm. vaks.
Tekur smá tíma fyrir nýjan garðyrkjustjóra að komast inn í hlutina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Jón Arnar Sverrisson tók við í byrjun apríl sem garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar en starfið var auglýst á síðasta ári. Alls sóttu átta manns um starfið og var hann ráðinn í lok febrúar en Jón Arnar var í fastri vinnu fyrir norðan á Dalvík, þar sem hann losnaði svo í byrjun apríl, en hann hefur búið þar síðan 2003. Jón Arnar, eða Nonni eins og hann er oftast kallaður, er borinn og barnfæddur á Akranesi en ástæðan fyrir því að hann sótti um segir Jón að það sé allt sambýlismanninum Arnari Símonarsyni að þakka. Jón elti hann norður fyrir 19 árum síðan og eltir hann núna suður aftur, segir Jón í gríni. Arnar sambýlismaður Jóns er kominn í draumastarfið sitt sem flugþjónn hjá Icelandair þannig að það hentaði vel fyrir þá að koma á Skagann.\r\n\r\nÍ hverju felst að vera garðyrkjustjóri? „Þetta er heilsársstarf og í rauninni var útbúin ný starfslýsing fyrir starfið. Sá sem var á undan mér var með titilinn umhverfisstjóri en ég er sem sagt garðyrkjustjóri. Ég sé um öll græn svæði bæjarins, allar stofnanalóðir, leikskólalóðir, alla leikvelli og öll útivistarsvæði. Svo ber ég ábyrgð á vinnuskólanum og svo kem ég einnig til með að vera í hönnun á nýjum grænum svæðum og beðum. Þar nýtist viðbótarmenntun mín, en ég er garðyrkjufræðingur í grunninn og lauk svo námi í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í fyrravor með BS í landslagsarkitektúr, nám sem mig hafði lengi dreymt um að fara í.“\r\n\r\n<em>Sjá nánar spjall um starf garðyrkjustjórans í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}