Fréttir

true

Formleg opnun Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum

Hnoðraból, leikskólinn á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal, var opnaður við formlega athöfn síðastliðinn föstudag. Leikskólinn var áður til húsa á Grímsstöðum en nýtt húsnæði var sambyggt fyrir skólann við hús GBF á Kleppjárnsreykjum. Húsnæðið var tekið í notkun fyrir einu og hálfu ári síðan eða 6. nóvember 2020. Ekki hefur fyrr en nú verið unnt að…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta í hraunjaðrinum undir Ljósufjöllum

Mikil uppbygging í ferðaþjónustu hefur átt sér stað á síðustu árum á Miðhrauni II á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar er fjölskylduvænn gististaður með húsum, íbúðum og herbergjum með eldunaraðstöðu, nokkurs konar þorp. Allt kúrir þetta undir háu mosagrónu hrauni sem veitir gott skjól fyrir norðanáttinni. Á svæðinu er leikvöllur með ærslabelg, gönguleiðir, lítið fjárbú og náttúrubað.…Lesa meira

true

Perlað af Krafti í Borgarnesi á laugardaginn

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, ætlar að standa fyrir mögnuðum perluviðburði í Borgarnesi laugardaginn 4. júní í tilefni af vitundarvakningu félagsins. Perlað verður nýtt „Lífið er núna“ armband sem fór í sölu 16. maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi og verður einnig til sölu á viðburðinum. Perlunin…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Íslands gefur til Lífsbjargar

Björgunarbátasjóði Björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ barst vegleg gjöf á dögunum þegar Fiskmarkaður Íslands hf. færði sjóðnum peningagjöf að upphæð ein milljón króna. Tilefnið var 30 ára afmæli FMÍS. Það var Guðmundur Smári Guðmundsson stjórnarformaður FMÍS sem afhenti styrkinn. Stjórn björgunarbátasjóðsins veitti styrknum viðtöku og sagði Halldór Kristinsson við það tækifæri, um leið og hann þakkaði…Lesa meira

true

Hjólastólalyfta tekin í notkun í Stykkishólmi

Hjólastólalyfta var í síðustu viku tekin í notkun í Íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi og hefur slíkur búnaður ekki verið fyrir hendi þar áður. Lyftan er við stigann milli inngangshæðar og neðri hæðar hússins þar sem m.a. eru klefar fyrir íþróttasalinn. Bætir þetta mjög aðgengi hreyfihamlaðra að húsinu og þeirri þjónustu sem þar er að finna.Lesa meira

true

Myndlistarsýning nemenda í Grundaskóla

Falleg listaverkasýning eftir nemendur í Grundaskóla hefur verið sett upp í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg á Akranesi. Þar má sjá myndverk eftir nemendur í 4. – 9. bekk skólans og hafa þau gert þau undir leiðsögn kennara síns, Angelu Árnadóttur, sem setti sýninguna upp með aðstoð 7. bekkjar teymis skólans. Sýningin er afrakstur vetrarstarfsins og…Lesa meira

true

Hærri styrkur til heyrnartækjakaupa

Styrkir vegna kaupa á heyrnartæki hækka um 10.000 kr. frá og með 1. júní samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Styrkupphæðin verður þar með 60.000 kr. fyrir kaup á einu heyrnartæki en 120.000 kr. fyrir einstaklinga sem þurfa á tveimur tækjum að halda. Með breytingunni er styrkurinn hækkaður upp til verðlags en styrkupphæðin hefur verið óbreytt frá árinu…Lesa meira

true

Markaþurrð á Vesturlandi í vikunni

Knattspyrnuliðin af Vesturlandi léku í liðinni viku og um helgina á Íslandsmótinu í knattspyrnu og virðast miðað við úrslit leikjanna alveg hafa gleymt að reima á sig markaskóna. Um var að ræða sjö viðureignir víða um landið hjá liðunum og í þessum leikjum öllum skoruðu þau ekki eitt einasta mark. Hver knattspyrnuleikur tekur um 90…Lesa meira

true

Nýr garðyrkjustjóri Borgarbyggðar

Í byrjun apríl hóf Piotr Wieslaw Kowalak störf sem nýr garðyrkjustjóri Borgarbyggðar. Piotr kemur frá Póllandi en hefur búið hér á landi síðastliðin fimm ár en áður starfaði hann hjá Steypustöðinni í Borgarnesi. Piotr er menntaður garðyrkjutæknimaður (e.gardener technician) með viðbótardiplómu í umhverfisstjórnun og verndun. Garðyrkjustjórinn vinnur nú að því að fegra garða og almenningssvæði…Lesa meira

true

Ókeypis hjólabrettanámskeið fyrir börn

Í sumar verður boðið upp á sumarnámskeið í hjólabrettagarðinum á Hellissandi. Í upphafi árs opnaði hjólabrettagarðurinn og hefur börnum á öllum aldri staðið til boða að mæta á æfingar endurgjaldslaust frá fyrsta degi. Verkefnið er samstarf Snæfellsbæjar og UMF Víkings/Reynis og stuðlar að auknum fjölbreytileika þeirra íþróttagreina sem stendur til boða í sveitarfélaginu. Sumarnámskeiðið verður…Lesa meira