{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, ætlar að standa fyrir mögnuðum perluviðburði í Borgarnesi laugardaginn 4. júní í tilefni af vitundarvakningu félagsins. Perlað verður nýtt „Lífið er núna“ armband sem fór í sölu 16. maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi og verður einnig til sölu á viðburðinum.\r\n\r\nPerlunin fer fram á Landnámssetrinu og er opið hús frá klukkan 13 til 17. „Þetta er tilvalið tækifæri til að eiga góða og skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið. Endilega kíktu á Facebook viðburðinn þar sem munu koma inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Landnámssetrið af góðhjörtuðum perlum. Hjálpaðu Krafti að hjálpa öðrum og styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum. Við hvetjum alla í Borgarnesi og nágrannabæjum og sveitum að mæta á svæðið og Perla af Krafti,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}
Perlað af Krafti í Borgarnesi á laugardaginn - Skessuhorn