{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Styrkir vegna kaupa á heyrnartæki hækka um 10.000 kr. frá og með 1. júní samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Styrkupphæðin verður þar með 60.000 kr. fyrir kaup á einu heyrnartæki en 120.000 kr. fyrir einstaklinga sem þurfa á tveimur tækjum að halda. Með breytingunni er styrkurinn hækkaður upp til verðlags en styrkupphæðin hefur verið óbreytt frá árinu 2015. Rétt á styrk eiga þeir sem eru sjúkratryggðir eldri en 18 ára og hafa tónmeðalgildi á betra eyra að lágmarki 30dB. Hægt er að sækja um styrk til heyrnartækjakaupa á fjögurra ára fresti.",
"innerBlocks": []
}