Miðhraun II – sumarhúsin í forgrunni og Ljósufjöll í baksýn.

Ferðaþjónusta í hraunjaðrinum undir Ljósufjöllum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mikil uppbygging í ferðaþjónustu hefur átt sér stað á síðustu árum á Miðhrauni II á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar er fjölskylduvænn gististaður með húsum, íbúðum og herbergjum með eldunaraðstöðu, nokkurs konar þorp. Allt kúrir þetta undir háu mosagrónu hrauni sem veitir gott skjól fyrir norðanáttinni. Á svæðinu er leikvöllur með ærslabelg, gönguleiðir, lítið fjárbú og náttúrubað. Rekstur veitingastaðar er nýnæmi á staðnum, en hann er opinn frá byrjun júní til loka október. Heitt vatn er til staðar. Því er þó ekki að neita að á ýmsu hefur þurft að ganga áður en þessum árangri var náð. Blaðamaður Skessuhorns tafði Bryndísi Huldu Guðmundsdóttur ferðaþjónustubónda um stund til að inna hana eftir fréttum.\r\n\r\n<em>Sjá opnuviðtal í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Ferðaþjónusta í hraunjaðrinum undir Ljósufjöllum - Skessuhorn