{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt samkomulagi Stykkishólmsbæjar og heilbrigðisráðuneytisins frá 8. febrúar sl. mun Heilbrigðisstofnun Vesturlands taka við rekstri 15 hjúkrunarrýma dvalarheimilisins í dag, 1. júní, og annast rekstur þeirra í húsnæðinu að Skólastíg 14a uns flutt verður í endurgert húsnæði HVE að Austurgötu 7. Kristín Hannesdóttir hjúkrunarfræðingur sem veitt hefur dvalarheimilinu í Stykkishólmi forstöðu hefur þegið starf hjá HVE og mun hún ásamt flestum starfsmönnum dvalarheimilisins verða starfsmaður HVE frá 1. júní. Fram kemur á heimasíðu Stykkishólmsbæjar að lögð verði áhersla á að íbúar í hjúkrunarrýmunum upplifi ekki breytingu á þjónustunni og að HVE hlakki til að takast á við þetta verkefni og býður íbúa og starfsmenn velkomna.",
"innerBlocks": []
}