
Sigfríður Björnsdóttir tók við starfi skólastjóra Tónlistarskóla Borgarfjarðar síðastliðið haust. Ljósm. sþ.
Skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar sér fram á spennandi breytingar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sigfríður Björnsdóttir er skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hún hefur sinnt starfinu síðastliðinn vetur og er sterkar rætur í Borgarfjörðinn. Blaðamaður hitti Sigfríði yfir kaffibolla á sólríkum degi í tómum tónlistarskólanum þar sem sumarfrí var hafið hjá nemendum og flestum kennurum.\r\n\r\n,,Ég er ættuð að norðan í báðar ættir en hef alltaf búið í Reykjavík. Ég byrjaði að vera með annan fótinn í Borgarfirðinum þegar ég var þrettán ára en þá var ég í sveit á Kirkjubóli og svo vann ég með fólki héðan. Ég bjó um tíma í Lundarreykjadal þar sem ég kynntist yndislegu og góðu fólki. Þá var ég með eldri dóttur mína hér í skóla og fiðlunámi. Ég kenndi líka lítillega á Kleppjárnsreykjum sem var mjög gaman. Síðar stundaði ég nám á Bifröst og bjó þar í tengslum við námið. Í dag á ég hlut í jörð í Reykholtsdalnum þar sem ég kom mér upp litlum kofa og rækta tré. Þannig hef ég haldið tengslum við vini mína hér sem hafa orðið til í gegnum árin. Í mínum huga er Borgarfjörðurinn svona hinn staðurinn sem ég vil vera á. Ég keyri samt á milli núna og er það m.a. út af fjölskylduaðstæðum. Það bara hentar eins og staðan er núna.“\r\n\r\n<em>Sjá viðtal við Sigfríði í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}