
Guðni Ágústsson með fyrsta flugulaxinn í Norðurá í fyrra, Þorsteinn Stefánsson með honum. Nú er sá háttur aflagður að bjóða til opnunar ýmsum þekktum einstaklingum. Ljósm. María Gunnarsdóttir.
Laxinn farinn að sjást víða í ánum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Já, við erum búnir að sjá laxa í Norðurá, sáum þá um helgina, en veiðin hefst 4. júní að morgni,“ segir Brynjar Þór Hreggviðsson við í Norðurá í Borgarfirði. „Það voru laxar á Stokkhylsbrotinu allavega tveir,“ bætti Brynjar þegar við heyrðum í honum þar sem hann var staddur við ána í veðurblíðunni um helgina. Nú í morgun hófst laxveiðin í Þjórsá og samkvæmt frétt á mbl.is nú rétt í þessu er fyrsti laxinn nú kominn á land.\r\n\r\nÍ kjölfar opnunar á Norðurá á laugardaginn verður Þverá opnuð 7. júní og Kjarará tveimur dögum síðar. Hítará verður opnuð 15. júní, Grímsá 17. júní og Langá á Mýrum 19. Allt er þetta því að fara á fleygiferð og laxinn mættur eða á leiðinni.\r\n\r\nEn tímarnir breytast og mennirnir með, undanfarna þrjá áratugi hefur verið sérstök opnun með viðhöfn og fjölmiðlafólki í Norðurá í Borgarfirði, fyrsta veiðidaginn. Fyrst hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, þegar stjórn félagsins opnaði ána með pompi og prakt, svo tók Einar Sigfússon við sem sölustjóri í ánni í fjölmörg ár og bauð ætíð völdum „áhrifavöldum“ að taka fyrsta kastið í ánni. Þessar opnunarhátíðir voru oft fyrirboðinn um hvernig laxveiðin myndi ganga og jók umfjöllun fjölmiðla um sportið. Nú hefur Rafn Valur Alfreðsson tekið við sölumálum í Norðurá og samkvæmt okkar heimildum verður þessi hefð um formlega opnun í ánni lögð af. Áin verður opnuð fyrir veiðimenn en án nokkurrar sérstakrar viðhafnar.\r\n\r\nSilungsveiðin hefur víða gengið vel í vor. Búið er að opna í vötnin og fiskurinn farinn að gefa sig. Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa góða fiska, ekki síst fínar bleikjur á grillið. Veiðimenn hafa líka verið að reyna í Hreðavatni og mun víðar. Þá vakti athygli hvað sjóbirtingurinn var vænn í vor. Spurningin er hvort það sé ekki fyrirboði um að laxinn sem gengur úr sjó verði að sama skapi vænn og pattaralegur.",
"innerBlocks": []
}