
Fráfarandi sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að staðfesta fyrir sitt leyti umsókn Apóteks Vesturlands um nýtt lyfsöluleyfi í Borgarnesi. Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur og eigandi Apóteks Vesturlands, segir í samtali við Skessuhorn að nú bíði hann einungis eftir formlegri afgreiðslu Lyfjastofnunar á lyfsöluleyfi fyrir Borgarnes. Hann kveðst búinn að taka á leigu húsrými…Lesa meira








