Sveinn Brandsson og Helgi Jónsson við vélina á hlaðinu á Blikastöðum. Ljósm. mm.

Hráefnið sótt í brotajárnsgám

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gamla fjósinu á Blikastöðum í Mosfellssveit hafa félagsmenn í Ferguson félaginu aðstöðu til viðgerða og geymslu á gömlum dráttarvélum. Þorfinnur Júlíusson frá Laugabæ í Bæjarsveit hefur fjósið á leigu og endurleigir síðan pláss út til þeirra sem vilja gera upp gamlar vélar. Nokkrum sinnum á ári blæs félagið til mannfagnaðar. Síðastliðinn laugardag var komið að einum slíkum. Á þriðja tug eldri véla var ekið út á hlað og síðan haldið í akstur um nærliggjandi svæði. Þarna gátu menn skoðað og skeggrætt um eldri vélar. Meðal véla sem voru til sýnis var nýuppgerður Ferguson árgerð 1955. Uppgerð þessarar vélar hefur verið í höndum tveggja félaga, þeirra Helga Jónssonar frá Haukagili og Sveins Brandssonar frá Katanesi. Bílskúr Helga við Vallholt á Akranesi hefur verið bækistöð þeirra við verkefnið. Seint á föstudagskvöldið luku þeir við endurgerðina, óku gamla grána upp á kerru við sólarupprás næsta dag og óku sem leið lá á Blikastaði.\r\n\r\nÍ Skessuhorni í dag er nánar sagt frá uppgerð þessarar gullfallegu Ferguson vélar af árgerð 1955, en það er óvenjulegt við framkvæmdina að hráefnið til smíðinnar sóttu þeir Helgi og Sveinn í brotajárnsgám. Fyrrum eigandi hafði hent vélinni.",
  "innerBlocks": []
}
Hráefnið sótt í brotajárnsgám - Skessuhorn