Hjónin í Saurbæ. Ljósm. gj

Hlaðvarpinn í Saurbæ er alþjóðlegur tengslapottur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hún er frá Stuðlum í Mývatnssveit og hann frá Dal í Grýtubakkahreppi, en nú hafa þau sest að í Hvalfirðinum þar sem fjörðurinn blasir við út um gluggann. Þau áttu gullbrúðkaupsafmæli fyrir nokkru og ætla að fagna því í sumar. Margréti Bóasdóttur og Kristján Val Ingólfsson búa nú á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.\r\n\r\n„Við fluttum hingað í júlí fyrir tveimur árum. Þegar ég horfði fyrst út um gluggann skildi ég ekki af hverju mér fannst ég alltaf hafa átt heima hérna. En það var í raun ekki skrýtið, ég er fæddur við Eyjafjörð þar sem sjórinn er við bæjardyrnar. Það eina sem mig vantar núna er að fá mér árabát svo ég geti veitt mér í soðið,“ segir Kristján. Þau hafa búið á ýmsum stöðum og þar á meðal tvisvar í Skálholti þar sem hann sat fyrst sem rektor og síðan vígslubiskup. „Það voru stór verkefni í Skálholti,“ segir hann. „Annars vegar var á sínum tíma verið að leggja niður lýðháskóla sem þar var og hins vegar þurfti að koma á fót nýjum Skálholtsskóla. Það er gaman að segja frá því að þegar við komum í Skálholt 1992 var eina fjarskiptatækið þar faxtæki sem skólinn hafði keypt af Flugfragtinni. Svo öll föxin frá okkur voru merkt fragtinni,“ segir hann og hlær.\r\n\r\n„Í Skálholti tók ég fyrst upp þann sið að hafa kvöld- og morgunbænir. Því hef ég haldið áfram hér. Þegar maður er kominn með svona takt í lífið getur maður ekki sleppt honum. Maður rammar inn daginn með þessu og það heldur í manni lífinu. Oftar en ekki mæta til mín trúfastir kirkjugestir en þetta hefur ekki verið mikið auglýst.“\r\n\r\n<strong>Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar</strong>\r\n\r\nKristján er kominn á eftirlaun en sinnir enn verkefnum fyrir biskupsembættið. Margrét er hins vegar söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar. Blaðamanni leikur hugur á að vita hvað felst í því starfi og Kristján skýtur því kíminn inn að það sé líklega fljótlegra að telja upp það sem söngmálastjóri gerir ekki. Margrét segir þetta vera stórkostlegt starf og hægt er að sjá í hendi sér að reynsla hennar sem söngkona og kórstjórnandi hljóti að koma sér vel á þessum vettvangi. Hún hefur líka gert mikið af því að skipuleggja alls kyns námskeið, ráðstefnur og kórahátíðir tengt tónlist og kirkjulegu starfi. „Starfsheitið söngmálastjóri er orðið 81 árs gamalt,“ segir Margrét. „Fyrsti söngmálastjórinn var Sigurður Birkis sem hóf störf árið 1941. Það er gaman að geta þess að þetta er ekki í fyrsta sinn sem söngmálastjóri býr á Vesturlandi, því Haukur Guðlaugsson sem lengi var á Akranesi var þriðji söngmálastjórinn. Embættið var stofnað til að sjá um söngmál kirkjunnar á landsvísu. Í þýsku, evangelisku landskirkjunum, heitir þetta Landeskirchenmusikdirektor sem er svolítið svipað starf, þ.e. í því felst að annast kirkjutónlistarmál á ákveðnu svæði.“\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við þau hjón í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Hlaðvarpinn í Saurbæ er alþjóðlegur tengslapottur - Skessuhorn