Fréttir

true

Skallagrímur vann Árbæ í 4. deildinni

Skallagrímur lék sinn fyrsta leik í sumar þegar liðið tók á móti Árbæ í A riðli 4. deildar í knattspyrnu karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Gestirnir komust yfir á sjöttu mínútu með marki frá Hjalta Kárasyni Djurhuus en Davíð Freyr Bjarnason jafnaði metin fyrir heimamenn eftir rúmlega…Lesa meira

true

Ráðstefna um Henry David Thoreau í Snorrastofu

Dagana 25. til 27. maí nk. verður haldin alþjóðleg ráðstefna í Snorrastofu í Reykholti um bandaríska heimspekinginn og rithöfundinn Henry David Thoreau. Ber hún yfirskriftina „Thoreau and the Nick of Time“. Viðburðurinn hefur verið á dagskrá Snorrastofu frá vorinu 2020, en ítrekað verið frestað vegna farsóttarinnar. Thoreau er einn þekktasti rithöfundur og heimspekingur Bandaríkjanna fyrr…Lesa meira

true

Dalamenn kusu um sameiningarkosti á laugardaginn

Íbúum í Dalabyggð bauðst á laugardaginn að taka þátt í könnun samhliða kosningum í sveitarstjórn um vænlega sameiningarkosti sveitarfélagsins. Á vef Dalabyggðar kemur fram að 304 hafi tekið þátt í könnuninni. 240 svöruðu játandi spurningunni hvort Dalabyggð ætti að hefja sameiningarviðræður. „Nei“ sögðu 22, en 26 merktu við að þeir hefðu ekki skoðun á því.…Lesa meira

true

Ók ölvaður á ofsahraða

Aðfararnótt laugardagsins mældist ökumaður í hraðamyndavél við Melahverfi á Vesturlandsvegi á 162 kílómetra hraða. Stuttu síðar hafði bifreiðin hafnað utan vegar við afleggjarann inn í Hvalfjörð en löng hemlaför voru á vettvangi. Í myndavélinni sást að ökumaður hafði keyrt á miðjum veginum áður en hann beygði og þykir mikil mildi að ekki hafi farið verr.…Lesa meira

true

Brosmildur bæjarstjóri með endurheimta Guðríði

Það var létt yfir Kristni Jónassyni bæjarstjóra í Snæfellsbæ þegar hann hitti að nýju styttuna af Guðríði Þorbjarnardóttur nú síðdegis í dag. Þá höfðu starfsmenn Vélsmiðjunnar Steðja á Akranesi náð henni út úr nokkurs konar eldflaugarskúlptúr sem tvær listakonur höfðu gert eftir að þær tóku styttuna ófrjálsri hendi á Laugarbrekku á Hellnum í liðnum mánuði.…Lesa meira

true

Flest váboð vegna tilkynninga um töfralyf við ristruflunum

„Ár eftir ár berast Matvælastofnun váboðs tilkynningar (e. Rapid alert notifications) frá ýmsum erlendum viðvörunarkerfum. Hérlendis berast váboðs tilkynningar varðandi fæðubótarefni í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar þrátt fyrir að það kerfi sé gert til að vakta váboð vegna lyfja. Í yfirferð Lyfjastofnunar kemur oft í ljós að um fæðubótarefni sé að ræða en ekki lyf. Oftast…Lesa meira

true

Guðríður er nú að losna úr prísundinni

Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur hefur undanfarnar vikur verið í vörslu lögreglunnar á Akranesi þar sem beðið var dómsúrskurðar um hvort heimilt væri að losa hana úr eldflaug sem sett hafði verið utan um hana. Eftir að málið hafði farið fyrir tvö dómsstig fékkst loks leyfi fyrir því að logsjóða botn eldflaugarinnar úr og frelsa styttuna,…Lesa meira

true

Kári með sigur í fyrsta heimaleiknum

Kári og KFS frá Vestmannaeyjum áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn í Akraneshöllinni. Fylkir Jóhannsson kom Kára yfir á 18. mínútu leiksins og fyrirliðinn Andri Júlíusson skoraði annað mark fyrir Kára á 37. mínútu en áður í leiknum hafði Andri misnotað vítaspyrnu. Staðan því 2-0 í hálfleik og…Lesa meira

true

Árný Huld hlaut flest atkvæði í hreppsnefnd

Í Reykhólahreppi var sveitarstjórn að þessu sinni kosin í persónukosningu þar sem engir framboðslistar bárust. Á kjörskrá voru 184, en alls greiddu atkvæði 99, þannig að kjörsókn var einungis 53,8%. Auðir og ógildir seðlar voru sex. Í sveitarstjórn voru kjörin: Árný Huld Haraldsdóttir, 58 atkv. Jóhanna Ösp Einarsdóttir, 53 atkv. Hrefna Jónsdóttir, 52 atkv. Vilberg…Lesa meira

true

Markalaust jafntefli hjá Víkingi Ólafsvík

Ægir og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudaginn og fór leikurinn fram á Þorlákshafnarvelli. Brynjar Kristmundsson stýrði liði Víkings í fjarveru Guðjóns Þórðarsonar sem var í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald í fyrstu umferðinni gegn Völsungi. Fátt var um fína drætti í leiknum en Ægismenn voru talsvert betri…Lesa meira