Ráðstefna um Henry David Thoreau í Snorrastofu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dagana 25. til 27. maí nk. verður haldin alþjóðleg ráðstefna í Snorrastofu í Reykholti um bandaríska heimspekinginn og rithöfundinn Henry David Thoreau. Ber hún yfirskriftina „Thoreau and the Nick of Time“. Viðburðurinn hefur verið á dagskrá Snorrastofu frá vorinu 2020, en ítrekað verið frestað vegna farsóttarinnar.\r\n\r\nThoreau er einn þekktasti rithöfundur og heimspekingur Bandaríkjanna fyrr og síðar. Hann var áhugasamur um Snorra Sturluson og vitnaði ítrekað til hans í verkum sínum, aðallega dagbókum. Thoreau er annars hvað þekktastur fyrir bókina Walden, sem er lykilverk á sviði náttúruheimspeki og náttúruverndar. Kom bókin út á vegum bókaútgáfunnar Dimmu árið 2017  í einstaklega vandaðri þýðingu Elísabetar Gunnarsdóttur og Hildar Hákonardóttur. Þá er Thoreau ekki síður þekktur fyrir kenningar sínar um borgaralega óhlýðni og í því sambandi var hann fyrirmynd manna eins og Mahatma Gandhi og Martin Luther King.\r\n\r\nRáðstefnan er undirbúin í samvinnu The Thoreau Society, stærstu samtök Bandaríkjanna um einstakan rithöfund. Fer hún fram í tveimur málstofum, í Hátíðarsal og bókhlöðu. Fyrirlesarar verða 37 talsins og koma þeir og aðrir gestir frá tíu löndum. Margir af fremstu Thoreau-sérfræðingum heimsins taka þátt.\r\n\r\nRáðstefnan er opin öllum og er aðgangur ókeypis. Sjá nánar á www.snorrastofa.is. Uppbyggingarsjóður Vesturlands er meðal þeirra sem styðja viðburðinn.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Ráðstefna um Henry David Thoreau í Snorrastofu - Skessuhorn