
Það var bongóblíða í Borgarnesi í leiknum í gær. Ljósm. glh
Skallagrímur vann Árbæ í 4. deildinni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skallagrímur lék sinn fyrsta leik í sumar þegar liðið tók á móti Árbæ í A riðli 4. deildar í knattspyrnu karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Gestirnir komust yfir á sjöttu mínútu með marki frá Hjalta Kárasyni Djurhuus en Davíð Freyr Bjarnason jafnaði metin fyrir heimamenn eftir rúmlega tuttugu mínútna leik. Rétt fyrir hálfleik varð Númi Steinn Hallgrímsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark fyrir Árbæ og staðan í hálfleik því 2-1 fyrir Skallagrími.\r\n\r\nElís Dofri G. Gylfason kom Sköllunum í 3-1 á 58. mínútu en Pape Mamadou Faye hleypti spennu í leikinn þegar hann skoraði fyrir Árbæ fjórum mínútum síðar. Það var síðan Sergio Fuentes Jorda sem tryggði sigur Skallagríms með fjórða marki Skallagríms sjö mínútum fyrir leikslok og lokastaðan góður sigur Skallagríms, 4-2.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms í deildinni er Vesturlandsslagur gegn Reyni Hellisandi þriðjudaginn 24. maí á Ólafsvíkurvelli og hefst klukkan 20.",
"innerBlocks": []
}