
Íbúum í Dalabyggð bauðst á laugardaginn að taka þátt í könnun samhliða kosningum í sveitarstjórn um vænlega sameiningarkosti sveitarfélagsins. Á vef Dalabyggðar kemur fram að 304 hafi tekið þátt í könnuninni. 240 svöruðu játandi spurningunni hvort Dalabyggð ætti að hefja sameiningarviðræður. „Nei“ sögðu 22, en 26 merktu við að þeir hefðu ekki skoðun á því.…Lesa meira








