Fréttir

true

Bjóða út tjaldsvæðið í Kalmansvík

Akraneskaupstaður hefur auglýst eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðis bæjarins við Kalmansvík. Samningstími er 1. júní 2022 til 30. apríl 2024. Svæðið í heild er 2,2 ha að flatarmáli en tjaldsvæðið sjálft er u.þ.b sjö þúsund fermetrar að meðtöldum bílastæðum. Á svæðinu eru tvær þjónustubyggingar og eitt leiksvæði. Tilboðum skal skila fyrir 26. apríl nk.Lesa meira

true

Nokkrir leikmenn af Vesturlandi í lokahópi yngri landsliða í körfu

Þjálfarar yngri landsliða Íslands í körfuknattleik hafa valið loka leikmannahópa sína fyrir sumarið 2022. Hóparnir hefja æfingar í lok maí eftir úrslit yngri flokka og æfa saman í sumar. U15 fer á æfingamót og æfingabúðir í Finnlandi með U15 liðum þeirra og U16 tekur þátt á Norðurlandamótinu og Evrópumótum FIBA. Nokkrir leikmenn úr liðum af…Lesa meira

true

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður símalaus frá og með deginum í dag

Frá og með deginum í dag verður Grunnskóli Snæfellsbæjar símalaus. Skólinn hefur óskað eftir góðu samstarfi við foreldra og vill að símar nemenda verði geymdir heima. „Við kynntum þessa hugmynd strax í haust en vegna Covid fannst okkur ekki ráðlegt að fara í þetta bann fyrr en nú,“ segir Hilmar Már Arason skólastjóri í samtali…Lesa meira

true

Íslensku tónlistarverðlaunin afhent í gær

Mikið var um dýrðir í Silfurbergi í Hörpu í gærkvöldi þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Þar kom saman stór hópur listamanna og aðstandenda til að fagna uppskerunni eftir gróskumikið tónlistarár í skugga heimsfaraldurs. Kynnar á verðlaunahátíðinni voru Guðmundur Felixson og Valgerður Guðnadóttir. Meðal verðlaunahafa má nefna að GusGus átti bestu plötu ársins,…Lesa meira

true

Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum lungnabólgu

„Gamla lyfið, acetýlsalicýlsýra, sem er betur þekkt sem aspirín, magnýl, eða hjartamagnýl, virðist hafa sterk og tölfræðilega marktæk verndandi áhrif gegn dauðsföllum meðal þeirra sem greinast með alvarlega lungnabólgu af völdum algengustu lungnabólgubakteríunnnar, sem kölluð er Streptococcus pneumoniae á fagmáli.“ Þetta segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítala, um…Lesa meira

true

Aðgátar þörf í Ólafsvíkurenni vegna grjóthruns

Grjóthrun varð á tólfta tímanum í morgun úr Ólafsvíkurenni. Náði það inn á aðra akreinina á veginum. Þegar myndin var tekin var búið að hreinsa veginn, en áfram fellur einn og einn steinn úr sárinu. Þarna er göngustígur og eru þeir sem leið eiga um svæðið hvattir til aðgæslu.Lesa meira

true

Háhyrningar halda gestum við efnið

Ágætlega viðrar til hvalaskoðunar við Snæfellsnes í dag. Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns brá sér í morgun í hvalaskoðunarferð með Gísla Ólafssyni skipstjóra á Írisi, hvalaskoðunarbáti Láka Tours. Siglt er frá Ólafsvík. Báturinn er nú staddur vestur af Öndverðarnesi og þar er mikið af háhyrningum, eða Killer whales, eins og þeir eru kallaðir. 26 ferðamenn eru…Lesa meira

true

Hólmfríður skipuð rektor Háskólans á Hólum

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar hefur skipað dr. Hólmfríði Sveinsdóttur rektor Háskólans á Hólum til næstu fimm ára. Skipan Hólmfríðar er samkvæmt einróma ákvörðun háskólaráðs frá 25. mars sl. um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Tekur hún við starfinu af Erlu Björk Örnólfsdóttur. Hólmfríður er með meistaragráðu í næringarfræði frá…Lesa meira

true

Skátar funda á Bifröst um helgina

Skátaþing verður haldið á Bifröst um helgina, dagana 1. – 3. apríl. Þar verður í forgrunni að vinna með uppfærðan dagskrárramma skátastarfsins. Rúmlega hundrað skátar í leiðtogahlutverkum munu mæta og leggja línur fyrir starfið á næstunni. Sjálfkjörið er í öll embætti á þinginu. Marta Magnúsdóttir úr Grundarfirði, sem verið hefur skátahöfðingi í 5 ár, gaf…Lesa meira

true

Samþykkja kaup á dælubíl í báðum sveitarfélögunum

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag voru samþykkt kaup á dælubíl fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar samkvæmt fyrirliggjandi tilboði frá Ólafi Gíslasyni & Co hf. að fjárhæð um 92 milljónir króna. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti sömuleiðis fyrir sitt leyti á fundi sínum í liðinni viku að tilboðinu verði tekið. Tilboðið var það eina sem barst en…Lesa meira