
Bríet vann til tvennra verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum. Hér á 17. júní á Akranesi í fyrra. Ljósm. vaks
Íslensku tónlistarverðlaunin afhent í gær
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mikið var um dýrðir í Silfurbergi í Hörpu í gærkvöldi þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Þar kom saman stór hópur listamanna og aðstandenda til að fagna uppskerunni eftir gróskumikið tónlistarár í skugga heimsfaraldurs. Kynnar á verðlaunahátíðinni voru Guðmundur Felixson og Valgerður Guðnadóttir.\r\n\r\nMeðal verðlaunahafa má nefna að GusGus átti bestu plötu ársins, Mobile Home, í poppi og Birnir var með plötu ársins, Bushido, í rappi og hipphoppi. Lag ársins í poppi var Mér er drull með FLOTT, Vesturbæjar Beach með BSÍ í rokki og Vogur með Birni í rappi og hipphoppi. Bríet hélt tónlistarviðburð ársins sem voru útgáfutónleikar í Eldborg og einnig var hún valin tónlistarflytjandi ársins. Bjartasta vonin var FLOTT og textahöfundur ársins var Teitur Magnússon. Þá var söngkonan Soffía Björg Óðinsdóttir tilnefnd í söng ársins en hún er frá Einarsnesi í Borgarhreppi.\r\n\r\nÍ flokki sígildrar og samtímatónlistar var Borgnesingurinn Anna Þorvaldsdóttir áberandi. Tónverk hennar, CATAMORPHOSIS, var valið tónverk ársins og þá var plata hennar og Spektral Quartet, Enigma, tilnefnd í flokknum Plata ársins. Reykholtshátíðin í Borgarfirði var tilnefnd í flokknum tónlistarviðburður ársins, hátíðir, en þar sigraði Björk Guðmundsdóttir með Björk Orkestral, Live from Reykjavík. Þá var Tónleikaröð á barnum Skuggabaldri valin tónlistarviðburður ársins í djass- og blústónlist en fyrir henni stóðu tónlistarmaðurinn Snorri Helgason og Borgnesingurinn Jón Mýrdal.\r\n\r\nÍ flokknum önnur tónlist átti Brek plötu ársins í þjóðlagatónlist og Emiliana Torrini átti besta lagið í opnum flokki með titillaginu Vertu úlfur úr leiksýningunni sem byggð er á sögu Borgnesingsins Héðins Unnsteinssonar.",
"innerBlocks": []
}