Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum lungnabólgu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Gamla lyfið, acetýlsalicýlsýra, sem er betur þekkt sem aspirín, magnýl, eða hjartamagnýl, virðist hafa sterk og tölfræðilega marktæk verndandi áhrif gegn dauðsföllum meðal þeirra sem greinast með alvarlega lungnabólgu af völdum algengustu lungnabólgubakteríunnnar, sem kölluð er Streptococcus pneumoniae á fagmáli.“\r\n\r\nÞetta segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítala, um niðurstöður í nýrri rannsókn sem unnin er af vísindafólki Háskóla Íslands og Landspítala. Í vikunni birtist grein í hinu virta tímariti Journal of Internal Medicine þar sem þessar niðurstöður eru dregnar fram en greinin byggist á rannsókn Kristjáns Godsk Rögnvaldssonar sem doktorsnemi við Læknadeild HÍ og læknir á Landspítala. Magnús Gottfreðsson er leiðbeinandi hans í verkefninu.\r\n\r\n„Þessi verndandi áhrif komu strax fram og voru raunar sterkust í bráðafasa sýkingarinnar, en þá er einmitt verulega aukin hætta á ýmiss konar fylgikvillum eins og hjartabilun og kransæðastíflu og dánartíðnin er há. En áhrifin entust í eitt ár og líklega lengur sem er afar merkilegt. Þetta á við um þá sem eru að taka lyfið þegar þeir veikjast eftir að leiðrétt hefur verið fyrir hugsanlegum bjögum,“ segir Magnús.",
"innerBlocks": []
}
Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum lungnabólgu - Skessuhorn