Grunnskóli Snæfellsbæjar verður símalaus frá og með deginum í dag

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Frá og með deginum í dag verður Grunnskóli Snæfellsbæjar símalaus. Skólinn hefur óskað eftir góðu samstarfi við foreldra og vill að símar nemenda verði geymdir heima. „Við kynntum þessa hugmynd strax í haust en vegna Covid fannst okkur ekki ráðlegt að fara í þetta bann fyrr en nú,“ segir Hilmar Már Arason skólastjóri í samtali við Skessuhorn. „Í haust fengum við hugmyndir frá nemendum um hvernig mætti bæta aðstöðu nemenda í frímínútum. Í framhaldinu af þeirri umræðu voru keyptir nýir sófar, töflum komið fyrir á göngum skólans, spilum var fjölgað og nemendur gátu farið í valda leiki í íþróttahúsinu. Við munum halda áfram að hlusta eftir óskum nemenda og reyna að verða við þeim,“ segir Hilmar Már.\r\n\r\nHilmar Már segir að aðalástæða þess að símarnir verði ekki leyfðir nú sé sú að þeir valda truflun, bæði í kennslustundum og í hinum frjálsa tíma. Einbeiting nemenda þverr og síminn á hug þeirra allan. Í bréfi til foreldrar vekur hann athygli á nokkrum staðreyndum um neikvæð áhrif síma á börn og ungmenni:\r\n
\r\n \t
Mikil notkun getur haft áhrif á andlega sem og líkamlega heilsu barna.
\r\n \t
Notkun samfélagsmiðla hefur oft skilað sér í miklum kvíða og streitu. Unglingarnir bera sig saman við aðra á samfélagsmiðlum og upplifa sig minna virði ef aðrir virðast betri í einhverju sem hefur áhrif á líf þeirra.
\r\n \t
Ungmenni verða brothættari, taka síður áhættu, verða síður frjálsleg, fá lægri einkunnir og fara sjaldnar á stefnumót af ótta við að mistakast eða vera gagnrýnd.
\r\n \t
Einelti á Netinu: Vegna nafnleyndarinnar sem samfélagsmiðlar bjóða upp á aukast líkur og hætta á ofbeldi, þar með talið kynferðisofbeldi, og geta ógnir valdið djúpum tilfinningalegum skaða. Það getur haft langvarandi áhrif sem fylgir einstaklingum til fullorðinsára.
\r\n \t
Notkun samfélagsmiðla hefur aukist samhliða verri andlegri líðan ungmenna
\r\n \t
55% einstaklinga upplifa slæma sjálfsmynd eftir notkun á samfélagsmiðlum
\r\n \t
Það hefur sýnt sig að börnin hafa ekki öll vald á að fara eftir skólareglum við notkun á símanum. Þar er sérstaklega átt við að fylgja banni við myndatökum í skóla og sendingum (birtingu) á efni sem tekið er upp þar á netmiðla, án samþykkis samnemenda eða starfsfólks skólans.
\r\n
\r\nJafnframt bendir Hilmar Már á að í ónefndum skóla hafi verið unnin könnun í 7. bekk um hve margar tilkynningar (notification) nemendur fengu og kom í ljós að þær voru að meðaltali 100 yfir daginn og sá sem fékk flestar fékk 467 tilkynningar eða um 20 á klukkustund! Þessar tilkynningar eiga hug nemenda og trufla daglegt líf þeirra. „Það er von okkar að eiga gott samstarf við foreldra og nemendur um þetta bann með velferð nemenda að leiðarljósi,“ segir Hilmar Már Arason.",
"innerBlocks": []

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður símalaus frá og með deginum í dag - Skessuhorn