Fréttir

true

H listinn býður ekki fram í vor

„H-listi Hvalfjarðarlistinn mun ekki bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Hvalfjarðarsveit. Fulltrúar listans hafa tekið ákvörðun um að bjóða ekki fram í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi. H-listi hefur starfað í meirihluta í sveitarstjórn frá sveitarstjórnarkosningunum 2018 með fulltrúum Á-listans. H-listinn þakkar fulltrúum Á listans og sveitungum fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu,“…Lesa meira

true

Badmintonfélag ÍA náði þriðja sætinu

Deildarkeppni BSÍ í badminton fór fram um síðustu helgi í TBR húsinu í Reykjavík. Alls tóku 16 lið frá sjö félögum þátt í keppninni en keppt var í þremur deildum; Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild. Badmintonfélag Akraness sendi lið til keppni í 2. deild en þar voru átta lið skráð og spiluðu þau í…Lesa meira

true

Snæfell tapaði gegn Hamri Þór

Snæfell og Hamar-Þór mættust í 1. deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Leikurinn var mjög mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en fyrir leik var Snæfell í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig og Hamar-Þór í sjöunda sæti með 18 stig. Leikmenn Hamars-Þór voru ákveðnari í fyrsta leikhluta…Lesa meira

true

Mál kjörstjórnar fellt niður

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál Inga Tryggvasonar, fyrrverandi formanns yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis. Þetta staðfestir Ingi í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins sem fyrst birti frétt þar að lútandi. Fullvíst er talið að aðrir í yfirkjörstjórninni fái sambærilegt bréf á næstu dögum. „Það var ekki talið líklegt til sakfellis. Það eru svo sem engin sérstök viðbrögð…Lesa meira

true

Íslenskt staðfest er nýtt upprunamerki fyrir matvörur og blóm

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í dag nýtt upprunamerki, Íslenskt staðfest. Merkið á við um vörur sem eru framleiddar og þeim pakkað á Íslandi og mun það auðvelda neytendum að velja íslenskt. Til að mega nota merkið þurfa framleiðendur að ábyrgjast að hráefni sé íslenskt og framleiðsla hafi farið fram hér á landi. Kjöt, egg, sjávarafurðir…Lesa meira

true

Bíll festist í krapa á leið upp á Langjökul

Bíll frá ferðaþjónustufyrirtækinu Into the glacier var á ferð upp í ísgöng í Langjökli með 37 farþega og leiðsögufólk í gær þegar hann festist í krapa í Geitlandi. Að sögn Birgittu Bjargar Jónsdóttur, rekstrarstjóra Into the glacier, er alltaf öryggisbíll með í för þegar ferðir eru farnar á jökulinn en ekki vildi betur til en…Lesa meira

true

Á listi meirihlutans í Hvalfjarðarsveit mun ekki bjóða fram

Björgvin Helgason, oddviti sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar og fulltrúi Á lista Áfram, hefur sent tilkynningu fyrir hönd listans. Þar kemur fram að Á listinn Áfram mun ekki bjóða fram fyrir kosningarnar 14. maí næstkomandi. Um leið galopnast staðan í sveitarfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Sjö sitja í sveitarstjórn; fjórir af Á lista, tveir af Íbúalistanum og einn…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Hrunamönnum

Skallagrímur tók á móti Hrunamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Gestirnir voru sterkari í fyrri hluta fyrsta leikhluta og komust í 6:12 en heimamenn komu síðan til baka og staðan 20:21 fyrir Hrunamönnum við flautið. Jafnræði var með liðunum allan annan leikhlutann, lítið skildi…Lesa meira

true

Rafmagnsbilun í Reykholtsdal

Rafmagnsbilun er í gangi á Reykholtsdalslínu í Borgarfirði, en bilanaleit er í gangi, samkvæmt tilkynningu frá Rarik. „Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528 9390“ Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira