Fréttir

true

Garðyrkjustöðin Laugaland 80 ára í dag

Í dag, mánudaginn 14. mars, eru áttatíu ár síðan hlutafélagið Laugaland ehf. var stofnað í Stafholtstungum í Borgarfirði og uppbygging garðyrkjustöðvar hófst. Þessara tímamóta verður minnst með einum eða öðrum hætti á afmælisárinu. Meðal annars hafa feðgarnir Helgi Bjarnason og Bjarni Helgason fundið til gamlar ljósmyndir úr starfinu og uppbyggingunni á Laugalandi, sem nú eru…Lesa meira

true

Mánudagsmyndin

Óhætt er að segja að mánudagar beri höfuð og herðar yfir aðra daga hvað varðar leiðindi í veðri í vetur. Allavega halda veðurguðirnir sig við að senda flestar af dýpstu lægðunum til okkar þá. Meðfylgjandi mánudagsmynd tók Þórdís Sigurbjörnsdóttir bóndi í Hrísum í Flókadal í morgun. Ekki hundi út sigandi og enn átti eftir að…Lesa meira

true

Suðaustan hvellur í dag

Suðaustan lægð gengur nú inn á landið og tekur appelsínugul viðvörun gildi innan skamms um vestanvert landið. Mjög hvasst verður um land allt fram eftir degi, fyrst um suðvestanvert landið og síðar ganga skilin austur yfir. Vegir eru enn flestir opnir en fastlega má búast við lokunum þegar lengra líður á daginn, til dæmis á…Lesa meira

true

Loðnuveiðiskipin flest komin til hafnar í morgun

Um klukkan þrjú í nótt kom Svanur RE inn til hafnar á Akranesi með loðnufarm. Þá var verið að landa úr Víkingi AK og beið Svanur á meðan. Venus beið svo í Reykjavik. Slæm veðurspá var fyrir daginn og voru öll loðnuveiðiskipin á leið til hafnar til löndunar í nótt, nema Jóna Eðvalds sem var…Lesa meira

true

Dúi er nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins

Skagamaðurinn Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins. Dúi er með diplóma í frönsku og markaðs- og útflutningsfræðum og hefur fjölbreytta reynslu úr kynningarmálum og fjölmiðlum. Hann hefur undanfarið starfað sem verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni. Frá 1991 hefur hann starfað við sjálfstæða framleiðslu fyrir innlendar og erlendar sjónvarpsstöðvar, bæði í handritaskrifum og myndgerð,…Lesa meira

true

Ætla að rampa upp Íslands

Átakinu Römpum upp Ísland var formlega hleypt af stokkunum í síðustu viku. Markmiðið með verkefninu er að byggja 1.000 rampa um land allt á næstu fjórum árum. Kynningarfundur um verkefnið var haldinn í Skyrgerðinni í Hveragerði. Þar fluttu ávörp Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og verndari verkefnisins, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri…Lesa meira

true

Leikrýni – Gleðin við völd í Lyngbrekku

Fátt er betra þegar á ýmsu gengur í veröldinni en að fara í leikhús. Það sýndi sig á fjöldanum og stemningunni í félagsheimilinu Lyngbrekku í Álftaneshreppi föstudaginn 11. mars þegar leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi leikritið Slá í gegn eftir Guðjón Davíð Karlsson (Góa). Þetta er í fyrsta sinn frá upphafi heimsfaraldurs sem borgfirskt leikfélag frumsýnir…Lesa meira

true

Ofsaveðri spáð á morgun – appelsínugul viðvörun í gildi

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir morgundaginn um allt norðvestanvert landið, Vesturland og miðhálendið. Það verður suðaustan 20-28 m/s og talsverð rigning. Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 35 m/s, t.d. á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og Barðaströnd. Það verður ekkert ferðaveður og nauðsynlegt…Lesa meira

true

Styður við fjölmenningarsamfélag í Grundarfirði

Verkefnið „Let´s come together / Komum saman“ var stofnað til að styðja við fjölmenningarsamfélag í Grundarfirði eða með öðrum orðum, til að auka samskipti fólks af ólíkum uppruna sem er búsett á svæðinu. Frá þessu segir á vef Grundarfjarðar. Undanfarin ár hefur færst í vöxt að til Grundarfjarðar flytji fólk til þess að vinna um…Lesa meira