Leikhópurinn eftir frumsýninguna, ásamt leikstjóra sínum Elfari Loga Hannessyni. Ljósm. gj.

Leikrýni – Gleðin við völd í Lyngbrekku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fátt er betra þegar á ýmsu gengur í veröldinni en að fara í leikhús. Það sýndi sig á fjöldanum og stemningunni í félagsheimilinu Lyngbrekku í Álftaneshreppi föstudaginn 11. mars þegar leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi leikritið Slá í gegn eftir Guðjón Davíð Karlsson (Góa). Þetta er í fyrsta sinn frá upphafi heimsfaraldurs sem borgfirskt leikfélag frumsýnir verk og það var merkjanlegt hvað fólk naut þess að vera komið aftur í heimaleikhús. Litríkt fjör ríkti á sviðinu og leikararnir geisluðu gleði út til áhorfenda. Söguþráður verksins er hér látinn liggja milli hluta, en um er að ræða kómíska blöndun tveggja sýninga, annars vegar sirkuss og svo uppsetningar á Gullna hliðinu sem Davíð Stefánsson skrifaði eftir alkunnri þjóðsögu. Þetta skapar að sjálfsögðu skemmtilega ringulreið og ýmis tækifæri til innskota magnþrunginna setninga Davíðs meðfram eðlislægu fjöri hringleikahússins. Það var gaman að sjá hvernig leikhópurinn gerði þetta og leikmyndin var hagnýt og vel nýtt.\r\n\r\nÞað reynir ekki bara á leikhæfileika í verki sem þessu, heldur líka hæfni í dansi og söng. Það gladdi að sjá þá hæfileika njóta sín hjá hópnum. Heyra mátti fallegar söngraddir og sjá krefjandi og líflegar hreyfingar. Leikhópurinn er fjölbreyttur og býr yfir krafti og sköpunargleði. Það var bókstaflega hægt að finna hvað þau höfðu gaman af því að gera þetta.\r\n\r\nSvo er það tónlistin. Í verkinu er að finna úrval af lögum Stuðmanna, flest þeirra vel þekkt. Sumir segja að tónlistin sé æðst lista. Innkoma hennar skiptir miklu máli í þessari uppfærslu. Ekki má gleyma því að að baki svona sýningu liggur þétt samvinna margra aðila. Framlag þeirra er samfélagslega afar mikilvægt. Blaðamaður Skessuhorns þakkar góðum hópi fyrir gefandi kvöldstund.\r\n\r\n<em>-Guðrún Jónsdóttir</em>",
  "innerBlocks": []
}
Leikrýni - Gleðin við völd í Lyngbrekku - Skessuhorn